text stringlengths 1 723k |
|---|
Austurríki fór með sigur af hólmi í Eurovision í kvöld þegar Conchita Wurst söng sig inn í hug og hjörtu Evrópubúa með laginu Rise like a Phoenix. Wurst tileinkaði sigurinn öllum þeim sem hafa trú á friði og jafnrétti en lagið hennar hlaut 290 stig. Holland varð í öðru sæti og Svíþjóð í því þriðja. Ísland fékk meðal an... |
Íslenski fótboltamaðurinn Heiðar Helguson og Mariam Sif Vahabzadeh eru trúlofuð. Hann bað hennar á bát í Tyrklandi og verður brúðkaup þeirra næsta sumar. Parið fór í brúðkaup hjá Joey Barton og Georgiu McNeil sem haldið var í Bretlandi. Barton er fyrrverandi leikmaður Manchester City „ Við erum búin að vera saman í fim... |
Endurskoðandi Svíans Anders Limpar fyrrum leikmanns Arsenal á yfir höfði sér fangelsisvist eftir að hafa verið fundinn sekur um að stela nærri 90 þúsund pundum ( rúmar 11 milljónir króna ) af leikmanninum sem hann hafði móttekið til að koma til skattsins í Englandi. Endurskoaðndinn heitir Marc Geppert og er 46 ára gama... |
" Ég meinti aldrei að hann væri rasisti, " segir Gaukur Úlfarsson sem tjáir sig um umdeildan dóm vegna bloggfærslu. |
Á hádegi í gær hittust um tuttugu manns við íslensku ræðismannaskrifstofuna í Barcelona til að sýna reiði sína í garð íslenska ríkisins vegna réttarhaldanna sem fara fram yfir nímenningunum svokölluðu. Þeir eru ákærðir fyrir árás á Alþingi í desember 2008. Í yfirlýsingu frá stuðningssíðunímenninganna segir : „ Kúgunara... |
Raoul Wallenberg, mannréttindastofnunin sænska skorar á Alþingi að endurskoða áætlanir um að skera niður fjárframlög til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Mannréttindaskrifstofan fékk í fyrra 8 milljóna króna framlag frá utanríkis - og dómsmálaráðuneyti en eins og fram hefur komið er ekki gert ráð fyrir neinu framlagi ti... |
Mikill fjöldi gesta var samankominn á glæsilegu hóteli Armani sem staðsett er í hæsta turni heims, Burj Khalifa. Chris Martin, tónlistarmaður úr Coldplay, var meðal gesta og hafði á orði að hvergi í heiminum væru jafn margir best klæddu á einum stað á sama tíma. Hann flutti nokkur lög í veislunni. Meðal annarra gesta v... |
Roy Carroll markvörður West Ham verður frá næstu sex vikurnar eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna bakmeiðsla sem hafa verið að hrjá hann. Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur aðeins leikið þrjá leiki á árinu en Alan Pardew stjóri West Ham sagði : ,, Hann fór í aðgerð. Hann er leiður en reynir samt að vear jákvæður o... |
„ Myndir öðlast oft markvert gildi með tímanum. Sumt sem virðist lítils virði í núinu verður merk heimild þegar fram líða stundir, til dæmis myndir af fólki við störf sín eða af skipum, bílum og húsum. Í safni mínu eru núna um 55 þúsund myndir af öllu mögulegu. Þetta er orðin heilmikil saga, “ segir Svavar B. Magnússon... |
Staða landsréttardómarans Jóns Finnbjörnssonar verður tekin til skoðunar á næsta fundi dómstólasýslunnar. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Tómasar Magnússonar, hæstaréttardómara og formanns stjórnar dómstólasýslunnar. Í svarinu segir að mál Jóns verði tekið fyrir hjá stjórninni að því leyti sem úrlausn þess snúi að hl... |
Verið er að leggja lokahönd á að standsetja brunnbátinn Snæfugl SU og gera hann kláran til að hefja flutning á lifandi fiski. Er raunar búið að flytja fyrstu laxana í tilraunaskyni, að því er kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Frá því skipið kom heim frá Póllandi hefur verið unnið að því að gera allt klárt um bo... |
Anna Björk Bjarnadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins Expectus. Hún tekur við af Ragnari Þóri Guðgeirssyni sem er stofnandi félagsins en hann verður stjórnarformaður. Anna hefur starfað við ráðgjöf hjá Expectus síðan 2013 en fyrirtækið var stofnað fyrir sjö árum og sérhæfir sig í ráðgjöf... |
Að Syðra-Laugalandi í Eyjafjarðarsveit rekur Kristín Kolbeinsdóttir veitingastaðinn Silva hráfæði á sumrin. " Þetta var fjórða sumarið sem við erum með veitingahúsið og sumarið í ár gekk ágætlega, " segir Kristín. " Það vantaði íslensku ferðamennina eins og alls staðar á Norðurlandi en það kom fleira heimafólk og túris... |
KFR vann baráttusigur í grannaslag gegn Stokkseyri í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á Stokkseyri í kvöld. Árborg gerði 1 - 1 jafntefli við Skallagrím í C-riðlinum. Magnús Hilmar Viktorsson kom Rangæingum yfir á 20. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Fjörið var meira í seinni hálfleiknum en Eyþór ... |
Hvað tekur þú með þér inn í haust, myrkur og vetur? Hvaða liti, hljóð, sögur, orð og upplifanir eru þitt vetrarnesti? Ég nýt þeirrar blessunar með konu minni að horfa líka á veröldina með fimm ára drengjum okkar. Við reynum að miðla þeim visku og vitum að á þessum árstíma eru Þingvellir aðalstaðurinn til upplifana. Við... |
Verð á bensíni, bæði með og án opinberra gjalda, er hæst á Íslandi af 12 Evrópulöndum samkvæmt lista sem Búnaðarbankinn Verðbréf hefur tekið saman. Listinn, sem birtur er í ½ 5 fréttum Búnaðarbankans fer hér á eftir en þar er miðað við verð í evrum á 95 oktana bensíni þann 1. september sl. Er stuðst við upplýsingar frá... |
Framkvæmdastjóri Glitnis HoldCo, Ingólfur Hauksson, segir ákvörðun um að fara fram á lögbann á fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík Media hafa verið tekna í samráði við tryggingafélag eignarhaldsfélagsins. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag, en þar áréttar Ingólfur að Glitnir Holdco ætli sér að reyna að fá s... |
Bardagar brutust út í morgun nærri alþjóðaflugvellinum í borginni Aleppo í Sýrlandi. Flugvöllurinn er opinn þó barist sé í einungis fimm kílómetra fjarlægð frá honum. Stjórnarherinn beitir stórskotaliði gegn stöðvum uppreinsarmanna víða um landið. 138 féllu í bardögum í gær þar af 93 almennir borgarar. |
Eftir Benný Sif Ísleifsdóttur. Bjartur, 2018. Innb. 368 bls. Hetjum hafsins hafa oft verið gerð skil í bókum en konurnar sem heima sátu virðast hafa fengið minni athygli. Bók Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur fjalla um eiginkonur sjómanna, kvenhetjurnar í lífsins ólgusjó. Gríma er fyrsta skáldsaga Bennýjar en barnabók henn... |
Eftir Írisi Ö. Vilbergsdóttur iris@24stundir.is Krakkarnir í leikskólanum Austurborg láta frídag ekki koma í veg fyrir að þau fagni 17. júní saman. Þau taka forskot á sæluna og ganga sína eigin skrúðgöngu 16. júní ár hvert. Börnin koma sér í hátíðarskap með því að lita fána og föndra áður en stóri dagurinn rennur upp. ... |
Þáttastjórnendur morgunsjónvarpsins Good Morning America brugðu sér í heimsókn til Nadiu Suleman á dögunum þar sem hún var önnum kafin við barnauppeldi enda er hún fjórtán barna móðir. Þegar fréttamennirnir spurðu hana hvort hún gæti hugsað sér að eignast fleiri börn svaraði Nadia : „ Ef ég vildi gera það á hefðbundinn... |
Eyjan er sunnan við Sankti Vinsent og Grenadíneyjar og norðan við Martinique. |
Verðbólga í ríkjunum þrjátíu sem eru aðilar að Efnahags - og framfarastofnuninni ( OECD ) mældist 2,2% í maímánuði og hélst þar með óbreytt frá því í aprílmánuði. Minni hækkanir á matarverði náðu að vega upp á móti verðhækkunum á olíu á heimsmarkaði, að því er fram kemur í hagtölum frá OECD. |
Liverpool staðfesti í gærkvöld að félagið hafi í fyrrakvöld fengið senda rannsóknarskýrsluna í máli Luis Suarez og Patrice Evra. Félagið segist nú þurfa að nýta tíma sinn til að skoða þessa 115 síðna skýrslu áður en tekin verður ákvörðun um áframhaldið. Suarez var dæmdur í átta leikja bann en Liverpool hefur alltaf sag... |
EIGENDUR Blómavals ehf. hafa samþykkt tilboð Húsasmiðjunnar hf. í allt hlutafé fyrirtækisins. Bjarni Finnsson, framkvæmdastjóri Blómavals, mun stýra fyrirtækinu áfram en Blómaval var stofnað árið 1970 af Bjarna og Kolbeini Finnssonum og fjölskyldum þeirra. Verið er að vinna að áreiðanleikakönnun á Blómavali og mun enda... |
Tveir spænskir myndasöguteiknarar hafa verið dæmdir til að greiða sekt að andvirði tæpra 270 þúsund króna hvor fyrir að misbjóða spænsku konungsfjölskyldunni. Teikning þeirra birtist á forsíðu háðstímaritsins El Jueves í júlí sl. Þar var dregin upp mynd listamannanna af ástarlotum prinsins Felipe og konu hans Letizia. ... |
Þorlákur Sævar Halldórsson barnalæknir var fæddur 25.6. 1934 í Reykjavík. Hann lést föstudaginn 19. september sl. Foreldrar hans voru Guðrún Soffía Þorláksdóttir húsmóðir, f. 14.9. 1913 á Hvammstanga d. 1.11. 1993 og Halldór Benjamín Þorbergsson sjómaður, f. 27.5. 1908 í Reykjavík, d. 10.12. 1970. Systkin : Þorbergur i... |
Nemendur í Smárahverfi í Kópavogi reyndu við Íslandsmet í hópknúsi í morgun í tilefni Vináttugöngu í bænum. Börnin gengu í Fífuna, mynduðu þar hjarta, tóku víkingaklapp og föðmuðust í tvær mínútur, sem í tilkynningu frá bænum er talið vera Íslandsmet. |
Í NÆSTU hádegisleiðsögn sérfræðinga í Þjóðminjasafninu verður haldið í gamla Forsalinn við Bogasalinn á 2. hæð og heilsað upp á þrjá höfðingja frá 17. öld. Leiðsögnin er á morgun, þriðjudag, og hefst kl. 12:10. Gunnar Hannesson sagnfræðingur kynnir fyrir gestum bræðurna Gísla og Þórð Þorlákssyni, biskupa á Hólum og í S... |
Tottenham vann gríðarlega mikilvægan sigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Brighton. Tottenham gat komist þremur stigum á undan Chelsea í töflunni með sigri í kvöld og styrkt stöðu sína í þriðja sætinu. Aðeins eitt mark var skorað í leik kvöldsins en það gerði Christian Eriksen fyrir heimamenn. Þetta rey... |
" SÍÐARI leikurinn var aðeins skárri en sá fyrri. Menn voru eitthvað frískari og síðan vaknaði Logi Geirsson aðeins síðasta stundarfjórðunginn og skoraði mörk af vinstri vængnum, " sagði Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari eftir sigurinn á Tékkum í Laugardalshöll í síðdegis í gær, 34 : 32. Alfreð var lítið ánægðari með s... |
Clarence Mitchell, talsmaður McCann-hjónanna, segir að taka verði fréttum dagsins af því að Madeleine McCann hafi verið flutt til Bandaríkjanna eftir að hún hvarf í Portúgal árið 2007 með fyrirvara. Mitchell sagði í samtali við Sky-fréttastofuna að hann væri sjálfur fullur efasemda um fullyrðingar öryggisvarðar í bresk... |
Raflagnafyrirtækið Rafmenn á Akureyri munu hér eftir sjá um þjónustu við fjarskiptakerfi Mílu á Akureyri og nágrannasveitum. Var samningur þar að lútandi undirritaður í dag. Samningurinn felur meðal annars í sér að starfsfólki Mílu á Akureyri verður boðið starf hjá Rafmönnum. Samkvæmt samningnum munu starfsmenn Rafmann... |
" Já, ég er afar þakklátur fyrir sófann hérna, " sagði Guðmundur Guðjónsson sem sat og beið í Smáralindinni eftir konu sinni en hún var á búðarrölti. " Við kíkjum gjarnan saman í bæinn þegar útsölur eru og mér finnst það skemmtilegt en stundum fær maður bara nóg og þá getur verið gott að setjast aðeins niður og hvíla s... |
Beitir Ólafsson, markvörður Ýmis og bróðir Finns, hefur einnig æft með Karlsruher undanfarna daga en hann hélt til Þýskalands fyrir rúmri viku síðan. Beitir Ólafsson, markvörður Ýmis og bróðir Finns, hefur einnig æft með Karlsruher undanfarna daga en hann hélt til Þýskalands fyrir rúmri viku síðan. Þeir bræður munu æfa... |
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, er tæpur fyrir leik gegn Reading á laugardag og hann gæti misst af öllum leikjum City í jólatörninni. Kompany meiddist í tapleiknum gegn Manchester United og gat ekki spilað gegn Newcastle um síðustu helgi. Kompany er meiddur aftan í læri. Í janúar mun City missa Kolo Toure s... |
( Lagt fyrir Alþingi á 144. löggjafarþingi 2014 – 2015. ) 1. gr. Við 21. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi : Ráðherra gefur árlega út leiðbeinandi reglur til sveitarstjórna, í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, um framkvæmd fjárhagsaðstoðar auk viðmiðunarfjárhæða fyrir fjárhagsaðstoð. 2. gr. Á eft... |
Þáttur af Ragnars sonum er ein af fornaldarsögum Norðurlanda. |
Ekki er víst hvort tónleikar verði haldnir á næsta ári í London til heiðurs Michael Jackson þar sem rekstur fyrirtækisins sem átti að sjá um skipulagningu þeirra, World Awards Media, gengur illa. Þó er ekki loku fyrir það skotið að bróðir Jackson, Jermaine, setji tónleikana upp sjálfur. Tónleikarnir áttu að fara fram í... |
Bayer 3 - 1 Eintracht Frankfurt 1 - 0 Leon Bailey ( ' 70 ) 2 - 0 Lucas Alario ( ' 80 ) 3 - 0 Kerem Demirbay ( ' 90 ) 3 - 1 Andre Silva ( ' 90 ) Evrópubaráttan í þýsku úrvalsdeildinni er orðin mjög hörð eftir úrslit dagsins. Dortmund vann fyrr í dag og nú í kvöld áttust við Bayer Leverkusen og Eintracht Frankfurt. Marka... |
KÓRDRENGURINN Chris Martin hefur bannað sína eigin tónlist á heimili sínu, þannig að Gwyneth Paltrow, eignkona hans, og Apple, dóttir þeirra, stelast til að hlusta á tónlist Coldplay í bílnum. " Tónlistin er eiginlega bönnuð á heimilinu. En þegar hann er ekki nálægur, spilum við hana í bílnum, " segir Paltrow. Martin h... |
Nám : Stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1982 ; próf frá Tölvuháskóla Verzlunarskóla Íslands 1989 ; tölvunarfræði frá University of Texas at Austin 1993 ; The Executive Program, Darden Business School, University of Virginia 2005 ; stjórnendamarkþjálfi, Háskólinn í Reykjavík, 2018. Störf : Haukar hf., forritari og síða... |
Réttur til fyrirvara Vegna fréttar í Morgunblaðinu í gær vill Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, árétta að hann telji neytendur hafa rétt til að gera fyrirvara um lögmæti gjaldeyrislána, þegar láni í erlendri mynt er breytt yfir í lán í íslenskum krónum. Nánar er fjallað um málið á www.talsmadur.is. |
Í tilkynningu frá Byr sparisjóði kemur fram að fjárhagsleg endurskipulagning sjóðsins sé vel á veg komin og hafa kröfuhafar, innlendir og erlendir, skrifað undir bindandi samkomulag þar um. ,, Samningar eru nú á lokastigi og er einungis beðið eftir umsögn opinberra aðila, " segir í kynningu. Fyrir liggur að fáist eigin... |
Birna Svava Ingólfsdóttir Vestmann fæddist 13. janúar 1938 á Grímsstöðum á Fjöllum. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 27. ágúst 2020. Foreldrar hennar voru Ingólfur Kristjánsson bóndi, f. í Víðikeri í Bárðardal 8.9. 1889, d. á Akureyri 9.6. 1954, og Katrín María Magnúsdóttir frá Böðvarsdal í Vopnafirði, f. 13.10. 1895, d... |
Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir að sprengja sprakk miðsvæðis í Bangkok, höfuðborg Taílands, í dag. Þá slasaðist fjöldi fólks samkvæmt frétt AFP fréttastofunnar. Þar kemur fram að líkamshlutar hafi verið á víð og dreif um götuna fyrir utan Erawan hofið þar sem sprengjan sprakk. Þúsundir heimsækja hofið á degi hve... |
Hollywood-leikarinn Tom Cruise sem dvalið hefur á Íslandi undanfarnar vikur fór niður í Þríhnúkagíg í Bláfjöllum um síðustu helgi, samkvæmt heimildum DV. Samkvæmt sömu heimildum hefur Cruise planað að fara aðra ferð niður í gíginn um helgina en í það skiptið ætlar hann að láta sig síga niður í reipi. Einstakur gíghelli... |
Eyjan varð þá hluti af nýlendum Bretlands á Kulborðseyjum. |
Umferðartafir eru á Reykjanesbraut vegna áreksturs, sem varð fyrir stundu við Hafnaveg, veginn sem liggur upp að aðalhliðinu upp á Keflavíkurflugvöll að svæði Varnarliðsins. Ekki er vitað um slys á fólki eða tjón á þessari stundu. Að sögn lögreglunnar í Keflavík er ekki ljóst hversu lengi umferðartafirnar vara. |
Staðfest var niðurstaða héraðsdómara um að hafna kröfu X um að fellt yrði úr gildi samþykki dóms - og kirkjumálaráðuneytisins til þess að hún yrði vistuð gegn vilja sínum á sjúkrahúsi. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir P-kk-nf K-x-x H-kk-nf, G-kk-nf C-kk-nf og M-kk-nf S-kk-nf. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstarétta... |
Það voru skiptar skoðanir á frammistöðu tónlistarmannsinsNeil Youngsem kom fram í Laugardalshöll í gær. Flestir voru þó á því að gamli gítarleikarinn hafi staðið sig með prýði en að tónleikarnir sjálfir hafi verið alltof stuttir. Það þarf ekki nema að bera saman svonefndan lagalista tónlistarmannsinsá tónleikum hans í ... |
Rhein-Neckar Löwen sem Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari stýrir varð fyrir talsverðu höggi í baráttunni um Evrópusæti í þýska handboltanum í gærkvöldi. Löwen tapaði fyrir Gummersbach á heimavelli 32 : 33 og náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Füsche Berlín á dögunum. Róbert Gunnarsson var ekki á meðal markask... |
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því nú rétt í þessu, á Facebooksíðu sinni, að reiðhjólamaður nokkur hafi verið gripinn en hann var á of mikilli ferð. Skríbent lögreglunnar virðist koma þetta á óvart því hann segir að hraðamælingar í íbúahverfum flokkist undir dagleg verkefni lögreglu. „ Á dögunum kom ný tegu... |
SKÁTAFÉLAGIÐ Kópar í Kópavogi verður 60 ára á morgun, miðvikudaginn 22. febrúar. Af því tilefni verður opið hús í skátaheimili þeirra á Digranesvegi 79. Að skátasið verður þar margt um að vera enda verða flestir starfandi skátar í Kópum á staðnum. Kópar hafa haldið úti skátastarfi í Kópavogi í 60 ár. Þeir fluttu fyrir ... |
Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í hlutafélögum og einkahlutafélögum mega ekki hafa fengið dóm á síðustu þremur árum. Ríkari kröfur eru gerðar til þeirra sem gegna ábyrgðarstörfum fyrir fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði, tryggingafélög og kauphallir. Þar þurfa 10 ár að líða frá dómi. Þetta segir Magnús Kristinn Ásgeirs... |
Forstjóri kísilverksmiðju PCC á Bakka segir lágt heimsmarkaðsverð á kísilmálmi og óstöðugan rekstur helstu ástæður þess að félagið leitar nú allt að 5 milljarða króna fjármögnun til að styrkja reksturinn. Kísilverksmiðja PCC var gangsett vorið 2018. Vandamálin hafa helst snúið að rykhreinsibúnaði frá ofnum hennar. Hlut... |
Nýbakaður Óskarsverðlaunahafi, Emma Stone, var kvíðafullt barn og unglingur sem bjóst alltaf við hinu versta. „ Ég þjáðist af stöðugum kvíða, “ segir hún. Á verstu tímabilunum gat hún ekki hugsað sér að heimsækja vini sína og henni fannst erfitt að mæta í skólann. Sjö ára gömul var hún sannfærð um að heimurinn væri að ... |
Eistneskur lögreglumaður var í dag dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Rússlandi fyrir njósnir. Maðurinn er sagði hafa ýtt undir spennu á milli Rússlands og Eistlands. Dómstóll í Pskov héraði sem er skammt frá landamærum Eistland dæmdi manninn í fangelsi fyrir njósnir, vera búinn vopnum og fyrir að fara yfir landamærin án ... |
Af leikara Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hinn mikli gleðigjafi Leslie Nielsen er allur. Nielsen var kanadískur leikari, þekktastur fyrir óborganlegan leik sinn í kjánagrínmyndum á borð við hina sígildu Airplane! og Naked Gun ( titill hinnar síðarnefndu fékk hina eftirminnilegu þýðingu Beint á ská á sínum tíma... |
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur samþykkt framlög vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags fyrir skólaárið 2018 - 2019. Framlagið byggist á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Framlag á hvern nemenda fyrir s... |
Danilo Turk, forseti Slóveníu, tilnefndi í dag Zoran Jankovic, borgarstjóra í Lubljana, sem forsætisráðherra landsins. Jankovic hlaut flest atkvæði í atkvæðagreiðslu á þingi í síðasta mánuði, en ekki þó hreinan meirihluta. Búist er við því að þingið samþykki hann sem forsætisráðherra í næstu viku, en þá fær hann fimmtá... |
ÓÁNÆGJA er meðal iðnaðarmanna vegna auglýsingaherferðar Húsasmiðjunnar sem ber heitið " Ekkert mál ". Eyjólfur Bjarnason, hjá Samtökum iðnaðarins ( SI ), segir iðnaðarmenn óhressa með það að Húsasmiðjan skuli auglýsa það sem ekkert mál fyrir venjulegt fólk að vinna verk sem iðnaðarmenn hafa sérmenntað sig í bæði bókleg... |
Á SAMA tíma og barningsmenn hamast við að lýsa ógæfu og bölvun ESB, horfum við Íslendingar fram á mestu erfiðleika í sögu þjóðarinnar í heila öld. Bankakreppan sem lagði fjármál þjóðarinnar í rúst hefur gengið berserksgang gegn efnahag og afkomu þjóðarinnar. Endanlegt tjónamat liggur ekki fyrir. Enginn veit hvort það v... |
" Á tímabili var þetta eins og alger eyðimerkurganga. Við reyndum að missa ekki sjónar á því hver við erum og hvað við stöndum fyrir, " segir Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússtjóri um kórónuveirufaraldurinn. Þremur vikum eftir að hún tók við starfi sínu var starfsemi leikhússins nánast í lamasessi vegna heimsfara... |
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að stjórnskipunar - og eftirlitsnefnd rannsaki hvort ríkisstjórnin hafi reynt að koma í veg fyrir að upplýsingar um skattsvikara yrðu keyptar. Össur Skarphéðinsson segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson hafi tekið upp háttal... |
Múrbúðin, sem rekur byggingavöruverslanir í Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri og Húsavík, opnar verslun í Vestmannaeyjum á næstu vikum. Þar verða í boði allar almennar byggingavörur og eigandinn óttast ekki samkeppni við verslanir sem fyrir eru. Múrbúðin verður til húsa að Flötum 29 þar sem Geisli var áður. „ Draumurinn... |
" Íslendingar verða að bera búnir undir það að heilbrigðiskerfið þurfi að bregðast við hugsanlegum hryðjuverkum. " Þetta segir bráðalæknir sem stýrði aðgerðum eftir skotárásirnar í Kaupmannahöfn í fyrra. Rétt rúmur mánuður var liðinn frá hryðjuverkaárásunum á Charlie Hebdo í París þegar skotárásir voru gerðar í Kaupman... |
Richie og Raleigh fá skýrslu um Margot frá einkaspæjaranum sem sviptir hulunni af reykingum hennar og framhjáhaldi. |
Árið 2003 lenti Huginn í 3. sæti D-riðils á eftir Hetti og Fjarðabyggð. |
Íslensk mykja er öflugri til metanframleiðslu en mykja úr kúm í nágrannalöndunum. Metanframleiðslustöð úr kúamykju frá bróðurparti kúabúa í Eyjafirði er talin geta framleitt metan fyrir allt að 5 þúsund bíla. Á fræðaþingi landbúnaðarins í dag verður kynnt rannsókn sem Svanhildur Ósk Ketilsdóttir, meistaranemi við Landb... |
Lítil kraftaverkastúlka fæddist á Filippseyjum í dag en móðirin fæddi stúlkuna í braki flugstöðvarbyggingar sem hefur verið breytt í neyðarskýli. Stúlkan hefur fengið nafnið Bea Joy í höfuðið á ömmu sinni sem talin er af eftir að fellibylurinn Haiyan reið yfir. Emily Sagalis, 21 árs, grét af gleði eftir að hafa fætt li... |
Bankinn stundar lánastarfsemi bæði í eigendalöndunum og í nývaxtarlöndum. |
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sagði í Kastljósi í kvöld að fyrirtækið hefði ekki getað greitt starfsfólki laun frá og með sumarmánuðum, ef ekki hefði verið brugðist við í rekstrinum eins og gert var í dag. Hann sagði algera sjóðþurrð hafa blasað við fyrirtækinu. Bjarni sagði ennfremur að raunverule... |
MESSAÐ var í kirkjunni í Flatey á Skjálfanda um verslunarmannahelgina eins og verið hefur um nokkurra ára hríð. Prestur var séra Hildur Sigurðardóttir, aðstoðarprestur á Skinnastað í Öxarfirði og voru kirkjugestir um fimmtíu talsins. Að þessu sinni brá svo við að barn var skírt við messu í Flatey, en þar mun síðast haf... |
„ Það að lögreglu - og tollstjórinn á Suðurnesjum hafi haft á einni hendi lög -, öryggis - og tollgæslumál er arfur frá þeim tíma er utanríkisráðuneytið fór með yfirstjórn mála á Keflavíkurflugvelli fyrir hönd allra ráðuneyta meðan á dvöl varnarliðsins stóð. Með breytingunni er verið að færa stjórnsýslulega skipan mála... |
Þann 31. júlí skipaði Albert ríkisstjórninni að hafa herinn til reiðu. |
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk í jafntefli Sönderjyske í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Arnar Birkir var næst markahæstur í liði Sönderjyske í 30 - 30 jafntefli við Bjerringbro-Silkeborg. Aaron Mensing var markahæstur með sex. Heimamenn í Bjerringbro byrjuðu betur og voru yfir framan af. Þegar ... |
Rory McIlroy endaði jafn í 22. sæti á síðasta risamóti ársins, PGA meistaramótinu, sem lauk nú um síðustu helgi. McIlroy hefur ekki náð að sigra mót á árinu og hefur hann einnig þurft að glíma við meiðsli. Í tvígang á þessu ári hefur hann þurft að taka frí í nokkrar vikur vegna meiðsla í rifbeinum. Nú virðast þau meiðs... |
Hún byrjar því með eiturlyfjasala og reynir að missa meydóminn með honum, en hættir við á síðustu stundu. |
Í tilefni af íslenska safnadeginum á morgun, sunnudag, er boðið upp á ókeypis göngu um miðbæinn þar sem Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur mun segja frá nýjustu fornleifafundum á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu. Þar hafa fundist afar merkar minjar um umfangsmikla atvinnustarfsemi allt frá landnámsöld, m.a gangstí... |
Spánverjinn Rafael Nadal féll í dag úr leik á Wimbledonmótinu í tennis þegar hann tapaði fyrir Belganum Steve Darcis í fyrstu umferðinni, en mótið hófst í dag. Darcis sigraði í þremur settum, 7 - 6 7 - 6 og 6 - 4. Þetta eru ein óvæntustu úrslit síðustu ára í tennisheiminum. Nadal, sem er fimmti á heimslistanum hefur un... |
Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út síðdegis í dag vegna manns sem féll í vatn í Jökuldal á Austurlandi. Ekkert liggur fyrir um eðli útkallsins að svo stöddu. Uppfært klukkan 17:15 Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að sveitirnar séu nú á leið á slysstað við Búrfellsvatn í Jökuldal þar sem maður féll ... |
Opnað hefur verið fyrir umferð um nýtt hringtorg á mótum Suðurlandsvegar og Breiðholtsbrautar við Rauðavatn en í sérstöku mati sem gert var á slysastöðum á höfuðborgarsvæðinu komu gatnamótin þarna verst út þegar tekið hafði verið tillit til umferðar og fjölda slysa undanfarin ár. Sigurður Helgason hjá Umferðarráði segi... |
Hjörtur Már Reynisson úr Sundfélaginu Ægi gerði sér lítið fyrir og sigraði í 50 metra flugsundi á fyrsta degi Sundmeistaramóts Íslands sem hófst í Laugardalslaug í kvöld. Hjörtur Már synti á 25,04 og annar, ekki langt undan, varð Örn Arnarson úr SH. Þetta mun vera í fyrsta sinn í langan tíma sem Örn tapar hér á landi í... |
Sverrir Ingi Ingason, varnarmaður Breiðabliks og U21 landsliðsins, var ánægður eftir 2 - 0 sigur gegn Kasakstan í undankeppni EM 2015 í gær. Ísland er með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki sína og á góðri leið í lokakeppnina. „ Fyrst og fremst var þetta þolinmæði og dugnaður í strákunum. Við vissum að Kasakstan ... |
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur lánað Anthony Knockaert til Championship-liðsins Fulham. Knockaert spilaði 30 leiki fyrir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en skoraði einungis tvö mörk í þeim. Hann hefur verið hjá liðinu síðan árið 2016 en hann kom þá frá Standard Liege. „ Markmiðið er að kom... |
ALOISIUS Arnstein Brodersen, norskur munkur eða kórherra af Ágústínusarreglu, þeirri sem var í klaustrunum í Viðey, á Helgafelli, Möðruvöllum, Skriðuklaustri og Þykkvabæ í Álftaveri, flytur sunnudaginn 1. október erindi um Ágústínusarregluna á miðöldum. Erindið er flutt í tengslum við sýninguna Klaustur á Íslandi, en h... |
Sóknarmaðurinn Joel Campbell hafði trú á því að hann gæti verið partur af liði Arsenal undir stjórn Unai Emery. Campbell gekk í raðir Arsenal frá Saprissa árið 2011 en spilaði aðeins 23 deildarleiki á sjö árum áður en hann samdi við Frosinone. Hann var spenntur eftir komu Emery á síðasta ári en var svo látinn fara áður... |
Erna Kristín Stefánsdóttir lét raka af sér hárið í morgun eftir að henni tókst að safna hálfri milljón til styrktar ABC-barnahjálpar. Erna Kristín var í viðtali við Ísland í dag í síðustu viku þar sem hún sagði frá áskoruninni. Í Íslandi í dag í kvöld verður fylgst með því þegar Erna Kristín fór á hárgreiðslustofuna í ... |
Dómari við landnýtingar - og umhverfisdómstól Ástralíu hafnaði því í morgun að veita leyfi fyrir nýrri kolanámu í Nýja Suður-Wales vegna fyrirsjáanlegra, neikvæðra áhrifa af brennslu kolanna á loftslagsbreytingar. Er þetta í fyrsta skipti í sögu Ástralíu sem námuleyfi er synjað með vísan til Parísarsamkomulagsins. Yfir... |
Steinunn Jóhannesdóttir eða Steinunn Alice J. Hayes ( 19. janúar 1870 - 14. mars 1960 ) var fyrsta íslenska konan sem tók læknapróf. |
Lögreglan hefur ekki tekið Klaustursupptökurnar til formlegrar athugunar en lögfræðingur lögreglunnar hefur farið yfir ummæli Gunnars Braga Sveinssonar varðandi loforð um sendiherrastöður. Gunnar lýsti fjálglega á upptökunum hvernig hann hefði unnið sér inn greiða hjá Sjálfstæðismönnum með því að skipa, sem þáverandi u... |
Mikið vesen hefur verið með farangur U21 árs landsliðsins fyrir leikinn gegn Dönum í Álaborg á föstudag. Liðin mætast þá í fyrri leik liðanna um sæti á EM á næsta ári. Farangur íslenska liðsins varð eftir í Kaupmannahöfn í gær vegna verkfalls hjá hlaðmönnum á flugvellinum þar. Farangurinn var ekki tekinn úr flugvélinni... |
Konur sem hafa átt erfitt með brjóstagjöf burðast oft með mjög sára reynslu og tilfinningar vegna þess og þær minnast tímans eftir fæðingu og fyrstu mánuði barnsins með sorg í hjarta þar sem ekkert rými var til að njóta með barninu. Krafan um að láta brjóstagjöfina ganga hafi orðið yfirþyrmandi. Þetta er á meðal þess s... |
Leik - og söngkonan Hilary Duff hefur nú sagt frá því að hún hafi drukkið fylgjuna sína í hristing fljótlega eftir að hún fæddi dóttur sína og að hún hafi gjörsamlega elskað það. Hilary sem er þrjátíu og eins árs gömul eignaðist sitt fyrsta barn með kærastanum sínum Matthew Koma í síðasta mánuði. „ Þetta var besti hris... |
Isaac “ Pablo Owusu Afriyie gengur til liðs við Ægi á láni frá Víking Reykjavík út tímabilið. „ Pablo er miðjumaður og kemur til með að styrkja og bæta leikmannahóp liðsins enn frekar fyrir komandi tímabil, við hlökkum til að sjá Pablo innan vallar! " segir á Instagram síðu Ægis. Pablo, sem er fæddur árið 2000, var á l... |
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor skilaði fjármálaráðuneytinu skýrslu um skatta og velferð á Íslandi í nóvember 2009, ári eftir umsamin verklok. Skýrslan er afrakstur skattaverkefnis sem Árni Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, samdi um við Félagsvísindastofnun í september 2007. Kostnaður við gerð skýrslunnar ... |
Manchester United hefur ákveðið að lækka miðveðr til yngri aðdáenda á næstu leiktíð. Fólk á aldrinum 18 - 25 ára getur keypt miða á 15 pund á leik eða um 2 þúsund krónur. Miðarnir verða í Stretford End sem er stúkan þar sem hörðustu stuðningsmenn United safnast saman. Með þessu vill félagið reyna að búa til meiri og be... |
Mikel Arteta hélt fyrir andlit sitt þegar hann mætti á æfingu Manchester City í morgun. Hann kom þar með í veg fyrir að ljósmyndarar næðu myndum af áverkum í andliti hans en hann var blóðugur í framan eftir slagsmálin sem brutust út í göngunum eftir sigur Manchester City gegn Manchester United í gær. Fjölmiðlar segja a... |
Kalkneysla ætti ekki að vera vandamál á Íslandi enda er mjólk og mjólkurvörur oft á borðum Íslendinga. Engu að síður skortir oft unglingsstelpur kalk en ráðlagður dagskammtur af kalki er stærri fyrir ungar stúlkur en aðra aldurshópa samkvæmt ráðleggingum landlæknisembættisins um daglega neyslu kalks. Auðveldlega má bæt... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.