Title
stringlengths
15
17
Keywords
stringlengths
3
238
Summary
stringlengths
73
7.23k
Text
stringlengths
125
444k
Mál nr. 282/2005
Kærumál Gjaldþrotaskipti Veðréttur Réttindaröð Veiðiheimildir
S veitti Ú lán með veði í fiskiskipi félagsins með þeim skilmálum að veðið næði einnig til fiskveiðiheimilda skipsins. Fiskiskipið fórst og í máli sem Ú höfðaði á hendur tryggingafélagi skipsins til heimtu vátryggingabóta var tryggingafélagið sýknað. Bú Ú var tekið til gjaldþrotaskipta og seldi skiptastjóri veiðiheimil...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. júní 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 27. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. júní 2005, þar sem hafnað...
Mál nr. 292/2007
Fasteign Galli Vextir Gagnsök Sératkvæði
L og K keyptu einbýlishús að Keilufelli í Reykjavík af V með kaupsamningi 1. september 2005. Samkvæmt söluyfirliti og kaupsamningi var birt stærð eignarinnar 146,8 m². Við síðari mælingu var komist að þeirri niðurstöðu að birt stærð hennar væri 125,7 m² og nam mismunurinn 14,3% af tilgreindu flatarmáli samkvæmt kaupsam...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Hjördís Hákonardóttir og Páll Hreinsson. Áfrýjendur skutu málinu upphaflega til Hæstaréttar 3. apríl 2007 en ekki varð af fyrirhugaðri þingfestingu þess 16. maí sama ár. Með heimild í 4. mgr. 153. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála...
Mál nr. 758/2017
Kærumál Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi
Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnirHelgi I. Jónsson, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson.Varnaraðili skaut málinu tilHæstaréttar með kæru 3. desember 2017 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnumdegi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. desember 2017 þar semvarnaraðila var gert að sæta...
Mál nr. 30/2021
Ávana- og fíkniefni Umferðarlagabrot Dómvenja Ítrekunaráhrif Lagaskil Stjórnarskrá Mannréttindasáttmáli Evrópu Skilorð Tafir á meðferð máls
R var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið í tvö skipti undir áhrifum ávana-og fíkniefna og fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum tiltekið magn af fíkniefnum. Við meðferð málsins í héraði játaði R sök en bar því við að umferðarlagabrotin væru fyrnd. Hæstiréttur vísaði til þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 10. júní 2021. Ákæruvaldið krefst þess að dómur Landsréttar verði staðfestur hvað varðar sakfellingu ákærða ...
Mál nr. 429/2014
Kærumál Ráðgefandi álit EFTA-dómstóllinn
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X o.fl. um að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um nánar tiltekin atriði í tengslum við rekstur máls ákæruvalds á hendur þeim vegna ætlaðra brota gegn ákvæðum almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Benedikt Bogason og Eiríkur Tómasson. Varnaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 13. júní 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. júní 2014 þar sem hafnað var kröfu...
Mál nr. 345/2017
Kærumál Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómariog Ingibjörg Benediktsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settirhæstaréttardómarar.Varnaraðili skaut málinu tilHæstaréttar með kæru 1. júní 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degisíðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. maí 2017, þar...
Mál nr. 449/2007
Bifreið Líkamstjón Skaðabætur Fyrning Gjafsókn
H krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu S og V vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í umferðarslysi 1995. Árið 2005 var af hálfu H leitað álits tveggja dómkvaddra matsmanna á örorku og miska hennar, sem rekja mætti til slyssins. Þar kom fram að heilsufar H hafi orðið stöðugt 1. janúar 1999. Í niðurstöðu Hæstaréttar...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 24. ágúst 2007. Hún krefst að viðurkennd verði skaðabótaskylda stefndu vegna líkamstjóns, sem hún varð fyrir sem ökumaður bifreiðarinnar X 1215 í umferðarslysi 31...
Mál nr. 328/1998
Aðild Samningur Forsenda Hlutafélag Sératkvæði
Eigendur hlutafélagsins V keyptu allt hlutafé í hlutafélaginu G en G var eignalaust félag sem ekki hafði neinn rekstur með höndum. Voru félögin sameinuð í þeim tilgangi einum að nýta uppsafnað tap G á móti hagnaði V við álagningu skatta. Skattyfirvöld höfnuðu því að taka tillit til sameiningarinnar við álagningu skatta...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Hrafn Bragason. Aðaláfrýjandi skaut máli þessu til Hæstaréttar með stefnu 20. ágúst 1998. Hann krefst þess að gagnáfrýjandi greiði 61.117.547 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafl...
Mál nr. 522/2005
Ökuréttarsvipting Akstur án ökuréttar Ölvunarakstur
B var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Hafði B frá árinu 1968 hlotið 14 refsidóma fyrir ölvun við akstur, en með 11 þeirra var hann jafnframt dæmdur fyrir akstur sviptur ökurétti. Með vísan til sakaferils B og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Hjördís Hákonardóttir og Ingibjörg Benediktsdóttir. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 23. nóvember 2005 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun og jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst þess að refsing ákærða verði þyngd. Ákæ...
Mál nr. 157/2012
Niðurfelling máls Málskostnaður
Mál G, J og S gegn Í var fellt niður fyrir Hæstarétti eftir samkomulagi aðila. Að kröfu Í, voru G, J og S dæmdir til greiðslu málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Benedikt Bogason settur hæstaréttardómari. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 9. mars 2012. Með bréfi til réttarins 13. september sama ár tilkynntu aðilar málsins að þeir hefðu komið sér saman um að óska e...
Mál nr. 463/2011
Kærumál Sjálfræðissvipting
Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að A yrði sviptur sjálfræði í 12 mánuði á grundvelli b. liðar 4. gr., sbr. 1. mgr. 5. gr. lögræðislaga nr. 71/1997.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Garðar Gíslason og Gunnlaugur Claessen. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. júlí 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 29. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 15. júlí 2011, þar sem sóknaraði...
Mál nr. 366/2009
Kynferðisbrot Börn Skaðabætur
T var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A, fæddri 1992, með því að hafa í nokkur skipti á árunum 2004 fram til í apríl 2007 við nánar tilgreindar aðstæður káfað utan klæða á brjóstum, lærum og kynfærum hennar og látið hana snerta kynfæri T utan klæða. Voru brot hans sem framin voru fram að því að stúlkan varð 14 ára ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen, Hjördís Hákonardóttir og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 22. júní 2009 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Af hálfu ákæruvalds er þess krafist að héraðsd...
Mál nr. 859/2015
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. desember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 28. desember 20...
Mál nr. 127/2015
Fasteign Landamerki Eignarréttur Samningur Tómlæti Kröfugerð Samaðild Frávísunarkröfu hafnað
Í málinu deildu aðilar um það hvort M o.fl., eigendur svonefndra Austurhúsa í Dyrhólahverfi í Mýrdalshreppi, ættu einir beinan eignarrétt yfir Dyrhólaey eða hvort þeir ættu þann rétt að jöfnu á móti Þ o.fl., eigendum Vesturhúsa. Í dómi Hæstaréttar var ekki fallist á kröfu M um frávísun málsins en hún var meðal annars á...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson, Helgi I. Jónsson, Viðar Már Matthíasson og Þorgeir Örlygsson. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 17. febrúar 2015. Áfrýjandinn Mýrdalshreppur krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá héraðsdómi, en til vara að ha...
Mál nr. 572/2006
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. nóvember 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. nóvember 20...
Mál nr. 507/2007
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. október 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. október 2007, þar sem v...
Mál nr. 594/2016
Kærumál Farbann
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir GretaBaldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir setturhæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar meðkæru 23. ágúst 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærðurer úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. ágúst 2016, þ...
Mál nr. 454/2010
Kærumál Aðför Innsetning Börn
Úrskurður héraðsdóms, þar sem fallist var á það með A að honum væri heimilað að fá dóttur sína tekna úr umráðum B og afhenta sér með beinni aðfarargerð, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Í hinum kæra úrskurði eru deilur aðila frá sambúðarslitum árið 2002 ítarlega raktar. Á þeim tíma hefur verið aflað margra sérfræðiálita um aðila málsins og dætur þeirra, síðast greinarge...
Mál nr. 641/2009
Kærumál Gagn Kæruheimild Frávísun frá Hæstarétti
X, Y, Z og Þ ehf. voru ákærð fyrir skattalagabrot. Þau kærðu úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu þeirra um að ákæruvaldinu yrði gert skylt að afhenda verjendum þeirra gögn málsins að nýju í samræmi við skilyrði laga um meðferð sakamála, þannig að þar verði engin óviðkomandi gögn að finna, að ákæranda verði gert...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Varnaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 2. nóvember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykj...
Mál nr. 346/2017
Kærumál Nauðungarsala
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu S um að nauðungarsala á eignarhluta hans í fasteigninni Á yrði felld úr gildi. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans í Hæstarétti, kom fram að varnir S hefðu ekki lotið að nauðungarsölubeiðni Í eða að framkvæmd nauðungarsölunnar h...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir MarkúsSigurbjörnsson, Benedikt Bogason og Viðar Már Matthíasson.Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttarmeð kæru 31. maí 2017, en kærumálsgögn bárust réttinum 14. júní sama ár. Kærður er úrskurðurHéraðsdóms Reykjaness 19. maí 2017, þar sem hafnað var kröfu sóknaraði...
Mál nr. 324/2004
Kærumál Gjaldþrotaskipti Samningur
M ehf. krafðist þess að krafa hans á vangreiddri leigu yrði samþykkt sem búskrafa samkvæmt 110. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. í þrotabúið. Í málinu lá fyrir samningur milli aðila um kaup á tiltekinni fasteign. Deildu aðilar um hvort vanskil þrotabúsins á leigu hennar teldist hluti af kaupverðinu samkvæ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. júlí 2004, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. ágúst sama árs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. júlí 2004, þar s...
Mál nr. 404/2004
Fæðingarorlof Skaðabætur Gjafsókn
Ekki var fallist á kröfu S um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði þar sem hann uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof og 4. gr. þágildandi reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks um að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendu...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 4. október 2004. Endanlegar dómkröfur hans eru að stefnda verði gert að greiða sér 1.782.996 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. ...
Mál nr. 106/2002
Hjón Skilnaðarsamningur Frávísun frá héraðsdómi að hluta Sératkvæði
M krafðist þess að yfirlýsing um breytingu á skilnaðarsamkomulagi sínu og J yrði dæmd ógild og að J yrði dæmdur til að greiða henni í samræmi við ákvæði samkomulagsins. Tekið var fram að ekki yrði leyst úr greiðslukröfu M án þess að taka afstöðu til skuldbindingargildis yfirlýsingarinnar. Þar sem hún hafði ekki sýnt fr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 28. febrúar 2002. Hún krefst þess að yfirlýsing hennar 10. september 1999 um breytingu á skilnaðarsamkomulagi aðila frá 22. júlí...
Mál nr. 688/2017
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson.Varnaraðili skaut málinu tilHæstaréttar með kæru 1. nóvember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnumdegi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 1. nóvember 2017, þar semvarnaraðila var gert að sæ...
Mál nr. 287/2010
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 Sératkvæði
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. maí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. maí 2010, þar sem varnaraði...
Mál nr. 549/2010
Kærumál Samningur Lögsaga Frávísunarúrskurður staðfestur
L höfðaði mál og krafði H, Á, Þ, J, A og G sameiginlega um greiðslu skuldar samkvæmt sjálfskuldarábyrgð á skuldbindingum í lánssamningi milli L sem lánveitanda og félagsins J sem lántaka, og viðauka við hann. Með hinum kærða úrskurði var málinu vísað frá héraðsdómi, þar sem lögsaga þess væri í Danmörku samkvæmt 13. gr....
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Garðar Gíslason og Jón Steinar Gunnlaugsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. september 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. september 2010, þa...
Mál nr. 230/2007
Þriðjamannslöggerningur Galli Tómlæti
Útgerðin K ehf. krafðist þess að fiskverkunarfyrirtækið N ehf. greiddi sér andvirði 3007 kílóa af fiski sem landað hafði verið á Höfn í Hornafirði 27. og 28. febrúar 2004 og fiskverkandinn F ehf. tók við skömmu áður en síðastgreinda félagið var úrskurðað gjaldþrota. Fyrir lá að N ehf. og F ehf. höfðu gert með sér samni...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 30. apríl 2007. Hann krefst þess að stefndi greiði sér 681.344 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu...
Mál nr. 409/2014
Gengistrygging Lánssamningur
J ehf. höfðaði mál á hendur Í hf. og krafðist viðurkenningar á því að skuldbindingar hans samkvæmt tveimur lánssamningum við G hf. væru í íslenskum krónum en gengistryggðar miðað við gengi erlendra gjaldmiðla. Fram kom að þegar textaskýring lánssamnings tæki ekki af skarið um hvers efnis hann væri hefði í dómaframkvæmd...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson settir hæstaréttardómarar. Dómsorð: Héraðsdómur skal vera óraskaður. Áfrýjandi, Jakob Valgeir ehf., greiði stefnda, Íslandsbanka hf., 800.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti. Dómur Héraðsdóms Reykjavíku...
Mál nr. 778/2009
Kærumál Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, en ákvæði úrskurðarins um tilhögun gæsluvarðhaldsvistar voru felld úr gildi.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. desember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykj...
Mál nr. 274/2002
Skaðabótamál Sund- og baðstaðir Öryggisráðstafanir
L krafði B hf. um skaðabætur vegna missis framfæranda en eiginkona hans hafði drukknað í Bláa lóninu. Hélt hann því fram að slysið yrði rakið til hættueiginleika baðstaðarins. Þá hefðu fyrirsvarsmenn B hf. ekki farið að fyrirmælum H um að grynnka lónið og að viðvörunarmerki hefðu verið ófullkomin jafnframt sem leitin a...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Árni Kolbeinsson, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein. Áfrýjandi skaut máli þessu til Hæstaréttar 14. júní 2002. Hann krefst þess að stefndi verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 4.957.484 krónur með 4,5% ársvöxt...
Mál nr. 624/2010
Kærumál Gjaldþrotaskipti Leigusamningur Forgangskrafa
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem því var hafnað að krafa O ehf. nyti rétthæðar sem búskrafa á grundvelli 3. tölul. 110. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti of.l. í þrotabú F ehf. F ehf. sem tekið var til gjaldþrotaskipta 5. nóvember 2009 hafði á leigu húsnæði. O ehf. lýsti yfir riftun leigusamningsins með y...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson og Jón Steinar Gunnlaugsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. október 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. nóvember 2010. Sóknaraðili kveðst hafa fengið vitneskju um úrskurðinn 14. október 2010 og ...
Mál nr. 37/2000
Kærumál Kröfugerð Faðerni Frávísunarúrskurður staðfestur Gjafsókn
M stefndi dánarbúum tveggja manna, þeirra Þ og T, til viðurkenningar á að Þ skyldi teljast faðir hennar. Fallist var á þá niðurstöðu héraðsdóms að M hefði verið löglega feðruð sem dóttir T með faðernisviðurkenningu hans. Þar sem krafa hefði ekki verið gerð um ógildingu þeirrar yfirlýsingar yrði að vísa málinu frá dómi.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason og Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. janúar 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. ...
Mál nr. 291/2005
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 Gæsluvarðhaldsvist
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur. Krafa X, um að aflétt yrði takmörkunum samkvæmt e. lið 1. mgr. 108. gr. sömu laga, var tekin til greina.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. júní 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærðir eru tveir úrskurðir Héraðsdóms Reykjavíkur 29. júní 2005, þar sem var...
Mál nr. 734/2017
Kærumál Sakarefni Nauðungarsala Frávísunarúrskurður staðfestur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem einkamáli B og D gegn Í og E til ógildingar á nauðungarsölu var vísað frá dómi með vísan til þess að B og D hefðu ekki beint kröfu um úrlausn um gildi nauðungarsölunnar til héraðsdómara eins og heimilt væri samkvæmt 1. mgr. 80. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, MarkúsSigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson.Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með ódagsettri kæru, sem barsthéraðsdómi 17. nóvember 2017, en kærumálsgögn bárust réttinum 23. sama mánaðar.Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. nóv...
Mál nr. 577/2010
Gjaldþrotaskipti Skiptakostnaður
Bú M ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta og var H skipaður skiptastjóri þess. Skiptabeiðandi, S, lagði fram tryggingu fyrir skiptakostnaði, sbr. 2. mgr. 67. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Í málinu krafði H skiptabeiðanda um greiðslu skiptakostnaðar, sem féll til umfram tryggingu. H hélt því fram að fé þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson. Samkvæmt úrslitum málsins verður áfrýjandi með vísan til 1. mgr. 130. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála dæmdur til að greiða stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti eins og í ...
Mál nr. 313/2004
Hylming Þjófnaður Tilraun Umferðarlög Ítrekun Vanaafbrotamaður Hegningarauki
S, sem var vanaafbrotamaður, var sakfelldur fyrir hylmingu, níu þjófnaðarbrot, eina tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot. Hafði S hlotið 27 sinnum dóma á árunum 1979 til 2000, en þrír þeirra höfðu ítrekunaráhrif. Var refsing S ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði, sbr. 71. gr., 72. gr., 77. gr. og 255. gr. alme...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 16. júlí 2004 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst þess nú að refsing ákærða verði staðfest. ...
Mál nr. 558/2015
Rangar sakargiftir Sakarefni Saknæmi Einkaréttarkrafa
X var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa með rangri kæru og röngum framburði hjá lögreglu leitast við að átta manns yrðu sakaðir um kynferðisbrot, líkamsárás, hótanir og ólögmæta nauðung en X hafði greint frá því að þau hefðu í sameiningu veist að henni með ofbe...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 22. júlí2016 í samræmi við yfirlýsingu ákærðu um áfrýjun. Af hálfu ákæruvaldsins er þesskrafist að hennar verði þyngd.Ákærða krefst aðallegasýknu, til vara að sér verði...
Mál nr. 609/2011
Kærumál Fjármálafyrirtæki Slitameðferð Lánssamningur
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var að viðurkenna tilteknar kröfur SS og SC, sem þau lýstu við slit F hf. sem almennum kröfum samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. SS og SC lýstu tveimur kröfunum við slit F hf. á grundvelli tveggja lánssamninga þeirra við F hf. með vísan til þess a...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. nóvember 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. október 2011, þa...
Mál nr. 27/2015
Kærumál Gjaldþrotaskipti Fasteignakaup Forkaupsréttur Aðild Frávísun frá héraðsdómi
Í málinu krafðist A ehf. þess að hann hefði notið forkaupsréttar samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup þegar þrotabú H ehf. gerði kaupsamning við T ehf. um sölu á nánar tilgreindum lóðum og gaf út afsal fyrir þeim í júlí 2013 og að hann hefði tilkynnt þrotabúinu innan frests samkvæmt 2. mgr. ákvæðis...
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson og Helgi I. Jónsson og Guðrún Erlendsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. janúar 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 22. dese...
Mál nr. 330/2009
Endurkrafa Stjórnsýsla Bótanefnd skv. lögum nr. 69/1995
Með ákvörðun bótanefndar 16. mars 2006 var Í gert að greiða tjónþolanum B bætur vegna líkamsárásar H og V. Í höfðaði mál og krafðist greiðslu úr hendi H og V. Byggði Í kröfu sína á 19. gr. laga nr. 69/1995 um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, þar sem segir að ríkissjóður eignist rétt tjónþola gagnvart tj...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Dómsorð: Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 20. mars 2009. Mál þetta sem dómtekið var 3. mars sl., er höfðað með birtingu stefnu 4. september 2008. Stefnandi er Ríkissjó...
Mál nr. 282/2000
Kærumál Félagsslit Vanreifun Frávísunarúrskurður staðfestur
Einkahlutafélagið S höfðaði mál á hendur einkahlutafélaginu G og krafðist viðurkenningar á lýstri kröfu félagsins við félagsslit G. Talið var að kröfur S væru svo vanreifaðar að ekki yrði komist hjá því að vísa málinu frá dómi og var frávísunarúrskurður héraðsdómara því staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. júlí 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. júní 2000, þar sem vísað var frá...
Mál nr. 6/2020
Skaðabætur Munatjón Sönnun Matsgerð
S ehf. höfðaði mál á hendur SP ehf. og krafðist skaðabóta vegna tjóns á fatnaði í verslun S ehf. af völdum steinryks sem hafði borist inn í verslunina vegna framkvæmda á vegum SP ehf. í nærliggjandi verslunarrými í sömu verslunarmiðstöð. S ehf. gerði annars vegar kröfu um bætur fyrir munatjón sem nam kostnaðarverði óse...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Benedikt Bogason,Ingveldur Einarsdóttir, Karl Axelsson, ÓlafurBörkur Þorvaldsson og Sigurður Tómas Magnússon.Áfrýjandiskaut málinu til Hæstaréttar 20. janúar 2020. Hann krefst þess að stefndi verðidæmdur til að greiða sér 29.208.508 krónur með vöxtum samkvæmt 1. mgr...
Mál nr. 184/2011
Ólögmæt meðferð fundins fjár Sératkvæði
R var ákærð fyrir brot gegn 246. gr. almennra hegningarlaga um ólögmæta meðferð fundins fjár með því að hafa í heimildarleysi kastað eign sinni á 810.000 krónur sem B lagði ranglega inn á bankareikning hennar en hún tók fjárhæðina út af reikningum sama dag og millifærði hana inn á tvo aðra reikninga, annan í eigu X. R ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Eiríkur Tómasson og Greta Baldursdóttir. Ákærða krefst aðallega sýknu, en til vara að refsing verði milduð. Í báðum tilvikum krefst hún frávísunar á kröfu brotaþola, B ehf. Brotaþoli hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti. I...
Mál nr. 124/2011
Lausafjárkaup Afhending Greiðsludráttur Riftun
S ehf. og H ehf. gerðu með sér samning um kaup síðarnefnda félagsins á bát í eigu S ehf. Skyldi hluti kaupverðsins greiðast við undirritun kaupsamnings en eftirstöðvarnar við afhendingu og undirritun afsals. Í málinu krafðist S ehf. þess aðallega að viðurkennd yrði riftun félagsins á kaupsamningi aðila og byggði á því ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Greta Baldursdóttir og Viðar Már Matthíasson. Dómsorð: Stefndi, Hafsbrún ehf., er sýkn af kröfum áfrýjanda, Sjóferðum Arnars ehf. Áfrýjandi gefi út afsal til stefnda fyrir vélbátnum Þingey ÞH 51, skipaskrárnúmer 1650, gegn greiðslu á 7.00...
Mál nr. 670/2015
Skuldamál Fyrning
Í hf. höfðaði mál gegn J til heimtu skuldar vegna yfirdráttar á tékkareikningi, en J krafðist sýknu á þeim grunni að krafan væri fyrnd. Fyrir lá að J stofnaði reikninginn í nóvember 2007 og notaði hann til desember 2008. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að krafa ...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, EiríkurTómasson og Greta Baldursdóttir. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 6. október 2015. Hann krefst þess að„allar kröfur hans fyrir héraðsdómi verði teknar til greina“. Þá krefst hann málskostnaðarí héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi ...
Mál nr. 345/1998
Lyfjaverð Stjórnvaldsákvörðun Fyrning Vextir
Sams konar mál og 343/1998 utan þess að í málinu reyndi á þá málsástæðu, að T ætti að greiða dráttarvexti frá dagsetningu mánaðarlegra uppgjöra við lyfsalann J vegna þess að hann hefði ritað fyrirvara á kvittun sína fyrir greiðslum frá T. Ekki var talið að fyrirvari sá sem J hafði ritað hefði verið nægilega skýr til að...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Arnljótur Björnsson, Hjörtur Torfason, Markús Sigurbjörnsson og Jónatan Þórmundsson prófessor. Aðaláfrýjandi skaut máli þessu til Hæstaréttar með stefnu 1. september 1998. Hann krefst aðallega sýknu af öllum kröfum stefnda og málskostnaðar í héraði...
Mál nr. 34/2012
Kynferðisbrot Börn
S var sakfelldur í héraði fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 með því að hafa farið höndum um kynfæri sín og fróað sér í viðurvist þriggja stúlkna. S neitaði sök. Með vísan til framburðar stúlknanna og þriggja vitna þótti háttsemi S sönnuð og til þ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson, Benedikt Bogason og Greta Baldursdóttir. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 10. janúar 2012 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Af hálfu ákæruvalds er þess krafist að sakfelling ákærða verði staðfest og refsing hans þyngd. Ákær...
Mál nr. 691/2008
Kærumál Fjárnám Málsvarnarlaun Mannréttindasáttmáli Evrópu
J krafðist að árangurslaust fjárnám, sem gert hafði verið hjá honum vegna vangreidds sakarkostnaðar í opinberu máli, yrði fellt úr gildi. Reisti hann kröfu sína meðal annars á c. lið 3. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að hafi sakborningur ekki nægt fé til að greiða lögfræðiaðstoð skuli h...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. desember 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 29. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. ...
Mál nr. 166/2007
Kærumál Fjárslit Óvígð sambúð Sameign
K og M, sem höfðu verið í óvígðri sambúð, deildu um hvort jörðin X ætti að koma til opinberra skipta við fjárslit milli þeirra sem sameign. Jörðin var þinglýst eign M og var talið að K hefði ekki sýnt fram á að eignarhald að jörðinni hefði verið annað en eignaskráning bar með sér. Þá var ekki talið upplýst að stofnast ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. mars 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra 28. febrúar 20...
Mál nr. 32/2001
Vinnuslys Líkamstjón Örorka Skaðabætur Sakarskipting
Ö, sem var 17 ára gamall, varð fyrir slysi við vinnu í fiskverkunarhúsi B. Hugðist Ö loka vél, sem notuð var til að pressa skreiðarhausa, en hafði hönd sína á falsi vélarinnar og klemmdist hún þegar lokið kom niður. Eftir slysið krafðist Vinnueftirlitið breytinga á stjórnbúnaði pressunnar. Þótti sýnt að vélin hefði ver...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir. Aðaláfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 22. janúar 2001. Hann krefst aðallega sýknu af kröfu gagnáfrýjanda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti, en til vara að hún verði lækkuð og má...
Mál nr. 655/2008
Líkamsárás Skilorð Miskabætur
H var ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás með því að hafa slegið A í andlitið með krepptum hnefa og síðan slegið hann tvisvar sinnum í höfuðið með glerflösku. Í dómi Hæstaréttar kom fram að framburður A þess efnis að H hefði slegið sig tvisvar í höfuðið með flöskunni ætti sér nokkra stoð í framburði læknisins Þ....
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Ríkissaksóknari skaut máli þessu til Hæstaréttar 11. nóvember 2008 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvalds sem krefst staðfestingar héraðsdóms. Ákær...
Mál nr. 298/2006
Kynferðisbrot Börn Skaðabætur
X var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 201. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með nánar tilgreindri háttsemi gagnvart stjúpdóttur sinni Y og fyrir brot gegn 1. mgr. 202. gr. sömu laga með nánar tilgreindri háttsemi gagnvart stúlkunni Z. Talið var sannað að X hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru greindi, þó ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinson, Garðar Gíslason, Hrafn Bragason og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 22. maí 2006 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst þyngingar á refsingu...
Mál nr. 271/2016
Kærumál Skiptastjóri Vanhæfi Meðalganga Frávísunarúrskurður staðfestur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli G og F ehf. gegn E var vísað frá dómi. Krafðist G þess að skiptastjóra í þrotabúi hans, E, yrði vikið úr starfi. Í héraðsdómi sem staðfestur var með vísan til forsendna varðandi kröfu G kom meðal annars fram að með vísan til skýrs orðalags 2. málsliðar 3. mgr. 76. gr. la...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir ViðarMár Matthíasson, Benedikt Bogason og Eiríkur Tómasson. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttarmeð kærum 4. apríl 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 19. sama mánaðar. Kærðurer úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 23. mars 2016 þar sem máli sóknaraðilansGuðmundar...
Mál nr. 40/2006
Skjalafals Vitnaskylda Mannréttindasáttmáli Evrópu Sératkvæði
G og X voru ákærðar fyrir skjalafals með því að hafa framvísað hvor sínu skuldabréfinu með falsaðri undirskrift Y sem sjálfskuldarábyrgðarmanns. X játaði að hafa ritað nafn Y á skuldabréfið sem hún var ákærð fyrir að framvísa en kvaðst hafa haft heimild Y til þess. Fyrir dómi skoraðist Y undan vitnaskyldu með vísan til...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 3. janúar 2006 í samræmi við yfirlýsingu ákærðu um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvaldsins, sem krefst þess að niðurstaða héraðsdóms um sakfellin...
Mál nr. 376/2013
Fjármálafyrirtæki Veðleyfi Veðskuldabréf Ógilding samnings
G krafðist þess að ógilt yrði veðleyfi sem hún hafði undirritað um að fasteign hennar yrði sett að veði til tryggingar skuld sonar síns H við Í hf., samkvæmt skuldabréfi útgefnu af honum. Byggði G á því að Í hf. hefði ekki staðið við skyldur sínar samkvæmt samkomulagi um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga frá 1. nóv...
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, Benedikt Bogason og Greta Baldursdóttir. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 4. júní 2013. Hann krefst sýknu af kröfu stefndu og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefnda krefst staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar f...
Mál nr. 446/2003
Kærumál Gjaldþrotaskipti Greiðslustöðvun Ábyrgð
Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þar sem tekin var til greina krafa K hf. samkvæmt 2. tölulið 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. um að bú F ehf. yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Var talið að einföld ábyrgð væri ekki nægileg trygging samkvæmt 1. tölulið 3. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991 ti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. nóvember 2003. Kærumálsgögn bárust réttinum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Norðurlands vestra 18. nóvember 2003 þar sem teki...
Mál nr. 274/2005
Kærumál Frestur Forföll
Úrskurði héraðsdóms um frestun aðalmeðferðar var hnekkt þar sem ekki þótti sýnt að lögmaður R eða hann sjálfur hefðu haft lögmæt forföll í þinghaldi til aðalmeðferðar, sem boðað hafði verið til með löngum fyrirvara.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason og Hrafn Bragason. Sóknaraðili skaut máli þessu til Hæstaréttar með kæru 22. júní 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. júní 2005, þar sem tekin var til ...
Mál nr. 225/1999
Vátrygging Fasteignasala Skipasala Gáleysi Fyrning Sératkvæði
Með dómi Hæstaréttar 15. júní 1995 var B, löggiltur fasteigna- og skipasali og héraðsdómslögmaður, dæmdur skaðabótaskyldur gagnvart einkahlutafélaginu H vegna mistaka við gerð samninga fyrir H um framsal aflaheimilda á árinu 1990. B, sem úrskurðaður var gjaldþrota í árslok 1993 og var eignalaus, hafði starfsábyrgðartry...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Pétur Kr. Hafstein, Gunnlaugur Claessen, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Hrafn Bragason. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar með stefnu 9. júní 1999. Hann krefst sýknu af öllum kröfum stefnda Haraldar ehf. og málskostnaðar úr hendi hans í héraði og fyri...
Mál nr. 209/2006
Kærumál Lögreglurannsókn Gagnaöflun Upplýsingaskylda Sératkvæði
L krafði I um upplýsingar um hverjir hefðu verið notendur tilgreinds vistfangs (IP-tölu) í tvö nánar tilgreind skipti. Var krafan sett fram á grundvelli heimildar í 3. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti, eins og henni var breytt með 9. gr. laga nr. 78/2005, en ákvæðið mælir fyrir um skyldu fjarskiptafyrirtækja...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. apríl 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóm...
Mál nr. 472/2005
Kynferðisbrot Börn Klám
Ó var ákærður fyrir brot gegn 3. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa tælt þrjár ungar stúlkur til samræðis og annarra kynferðismaka með þeim hætti sem nánar var lýst í ákæru. Talið var sannað að Ó hefði tælt stúlkurnar til þeirra athafna sem í ákæru greindi og var ekki vefengt að samræði og...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Bragason og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 2. nóvember 2005 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun en einnig af hálfu ákæruvalds, sem krefst þess að refsing...
Mál nr. 850/2016
Kærumál Fjárnám Aðfararheimild
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi fjárnámsgerð sýslumanns vegna ógreiddra hitaveitugjalda J á þeim grundvelli að V hefði brostið heimild til að byggja kröfu um gjöldin á áætlun í stað þess að staðreyna raunverulega vatnsnotkun með álestri af mælum. Í dómi Hæstaréttar var úrskurðurinn staðfestur...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, BenediktBogason og Viðar Már Matthíasson.Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. desember 2016, enkærumálsgögn bárust réttinum 2. janúar 2017. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Norðurlandseystra 5. desember 2016, þar sem tekin var ...
Mál nr. 33/2019
Kærumál Kæruheimild Lögvarðir hagsmunir Frávísun frá Landsrétti
Aðilar deildu um gildi sjálfskuldarábyrgða sem K hafði undirgengist með áritun á tvö skuldabréf vegna skulda J við L. Hafði bú J verið tekið til gjaldþrotaskipta og K greitt skuldina með fyrirvara um rétt til endurkröfu. Eftir að J lést lýsti K kröfu í dánarbú hans en við meðferð málsins fyrir Landsrétti var upplýst að...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæmahæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Benedikt Bogason, Greta Baldursdóttir,Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.Sóknaraðili skaut málinu tilHæstaréttar með kæru 27. júní 2019, en kærumálsgögn bárust réttinum 5. júlísama ár. Kærður er dómur Landsréttar 14. júní 2019, þar sem máli sóknarað...
Mál nr. 136/2001
Kærumál Fjárnám Gagnaöflun Aðilaskýrsla Vitni
Að kröfu H gerði sýslumaður fjárnám hjá A ehf. og í framhaldi af því höfðaði A ehf. mál á hendur H til ógildingar fjárnámsins. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um höfnun ógildingarkröfunnar enda þóttu engir þeir annmarkar hafa verið á meðferð málsins fyrir héraðsdómi, er valdið gætu því að úrskurður héraðsdóms yrði f...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. apríl 2001, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 11. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. mars 2001, þar sem hafnað var ...
Mál nr. 807/2016
Kærumál Aðför Frávísun frá héraðsdómi
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfestar voru ákvarðanir sýslumanns um að stöðva aðfarargerðir í málum F og R gegn P og B ehf. Við fyrirtöku málanna lét fyrirsvarsmaður F og R bóka eftir sér að hann mótmælti ákvörðunum sýslumanns og áskildi sér rétt til að bera þær undir héraðsdóm. Var málinu vísað frá héraðs...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir,Benedikt Bogason og Karl Axelsson.Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 30. nóvember2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 13. desember sama ár. Kærður er úrskurðurHéraðsdóms Reykjavíkur 22. nóvember 2016, þar sem staðfestar voru ákv...
Mál nr. 81/2001
Skuldabréf Skaðabætur Umboð Fjöleignarhús
F gaf út skuldabréf í nafni H. Í máli, sem rekið var samkvæmt XVII. kafla þágildandi laga nr. 85/1936 um meðferð einkamála í héraði, var H dæmdur til að greiða kröfu samkvæmt skuldabréfinu, enda taldi dómari að varnir H, er lutu að umboðsskorti F, kæmust ekki að í málinu. K fékk framselda dómkröfu L á hendur H og lýsti...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 5. mars 2001. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæ...
Mál nr. 412/2009
Kyrrsetning Eignarréttur
Staðfest var kyrrsetning í innstæðu í bankareikningi í eigu G ehf., enda var ekki sýnt fram á að hún væri í eigu annarra en félagsins.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Dómsorð: Mál þetta, sem dómtekið var 12. júní 2009, er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjaness af NBI hf., Austurstræti 11, Reykjavík, með réttarstefnu útgefinni af dómstj...
Mál nr. 201/2011
Kærumál Fjármálafyrirtæki Slit Hlutafélag Firmaritun Umboð Ábyrgð Kröfugerð Skipting sakarefnis
Kærður var úrskurður héraðsdóms, þar sem hafnað var að viðurkenna kröfu KS að fjárhæð 463.200.000 sterlingspund, sem hann lýsti á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar K frá 17. september 2007 við slit K. Ábyrgðaryfirlýsingin var til komin vegna kaupa KH, dótturfélags K, á félaginu D á Mön af DH, en D mun eftir kaupin hafa v...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. mars 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóm...
Mál nr. 717/2010
Kærumál Kröfugerð Dómstóll Frávísunarúrskurður staðfestur
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A á hendur lögreglustjóranum L var vísað frá dómi en í málinu krafðist A að L yrði gert að afhenda sér gögn um rannsókn sakamáls á hendur sér. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að í lokamálslið 1. mgr. 37. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé tekið fram að bera megi undir...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. desember 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. desember 2010, þar sem m...
Mál nr. 754/2013
Kærumál Gagn
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu J um að fjármálafyrirtækinu Í hf. yrði gert að leggja fram nánar nánar tiltekin gögn í máli sem Í hf. höfðaði á hendur J.
Dómur Hæstaréttar Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Benedikt Bogason og Þorgeir Örlygsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. nóvember 2013 sem barst héraðsdómi þann dag og Hæstarétti ásamt kærumálsgögnum 29. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. n...
Mál nr. 188/1998
Tryggingarbréf Víxill Bankaábyrgð Útivist Varnir
Bankinn Í höfðaði mál gegn félaginu A til greiðslu skuldar og gegn Þ til að þola staðfestingu á 6. veðrétti og uppfærslurétti í fasteign hennar á grundvelli tryggingabréfs sem A gaf út til Í. Ekki var sótt þing fyrir hönd A í héraði og var félagið dæmt til greiðslu skuldarinnar og veðréttur í fasteign Þ staðfestur. Þ á...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 5. maí 1998. Krefst hún þess aðallega að hinn áfrýjaði dómur verði ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsuppsögu að nýju. Til var...
Mál nr. 488/2017
Líkamstjón Bifreið Skaðabætur Matsgerð Sönnunarmat Gjafsókn
A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi á árinu 2013. Óumdeilt var að líkamstjón A væri bótaskylt en aðila greindi á um eðli þeirra áverka sem A hlaut á hægri öxl í slysinu og hver væri miski hans og örorka á þeim grundvelli. Reisti A kröfu sína um greiðslu skaðabóta á matsgerð örorkunefndar sem taldi að varanlegur mi...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson og Greta Baldursdóttirog Valtýr Sigurðsson fyrrverandi ríkissaksóknari.Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 31. júlí 2017. Hann krefst þess aðstefndi greiði sér 4.609.648 krónur með 4,5% ársvöxtum af 385.807 krónum frá 27.júní 2013 til 1. apríl ...
Mál nr. 529/2016
Kærumál Dómkvaðning matsmanns
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem tekin var til greina krafa V ehf. um dómkvaðningu matsmanna. Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 247/2016 var staðfestur úrskurður héraðsdóms um frávísun máls V ehf. á hendur A hf., L ehf. og fleirum á þeirri forsendu að ágreiningur í málinu ætti undir gerðardóm. V ehf. beindi síðar ...
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir ÓlafurBörkur Þorvaldsson og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir setturhæstaréttardómari. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttarmeð kærum 19. og 25. júlí 2016, en kærumálsgögn bárust réttinum 28. samamánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. j...
Mál nr. 259/2016
Kærumál Farbann
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr., sbr. b. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma Helgi I. Jónssonhæstaréttardómari og Hjördís Hákonardóttir og Ingveldur Einarsdóttir settirhæstaréttardómarar. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar meðkæru 4. apríl 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. sama mánaðar.Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 1. apríl 2016 ...
Mál nr. 566/2009
Kærumál Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til c liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. [...],[...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 30. október nk. kl. 16:00.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. október 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reyk...
Mál nr. 62/2007
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. febrúar 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 1. febrúar 2007, þar...
Mál nr. 58/2010
Kærumál Frávísunarúrskurður felldur úr gildi að hluta Kröfugerð Vanreifun
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli M hf. gegn A var vísað frá dómi. Talið var að reikningsyfirlit sem M hf. hafi lagt fram í málinu væri nægilega glöggt til að A gæti gert sér grein fyrir kröfunni og tekið til varna. Þá var komið fram að A hafði mótmælt uppgjöri M hf. á viðskiptum þeirra. Hafði M hf. gert lei...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Garðar Gíslason og Jón Steinar Gunnlaugsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. janúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. febrúar sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. janúar 2010, þar s...
Mál nr. 174/2010
Kærumál Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. mars 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjane...
Mál nr. 158/2005
Kærumál Áritun stefnu Kröfugerð Frávísun frá Hæstarétti
Með úrskurði héraðsdóms var tekin til greina krafa S um að felld yrðu niður réttaráhrif áritunar héraðsdómara á stefnu í máli F gegn honum, sem endurupptekið hafði verið eftir ákvæðum XXIII. kafla laga um meðferð einkamála. Var dómkrafa F fyrir Hæstarétti ekki talin lúta að efni úrskurðarins, heldur varða önnur atriði,...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Guðrún Erlendsdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. apríl 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. apríl 2005, þar sem t...
Mál nr. 343/2010
Kærumál Niðurfelling máls Málskostnaður
B hf. höfðaði mál á hendur T en felldi málið niður. Krafa T um málskostnað var lögð í úrskurð dómara sem úrskurðaði að B hf. skyldi greiða T 94.125 krónur í málskostnað að meðtöldum virðisaukaskatti. T kærði þann úrskurð til Hæstaréttar. Var þar meðal annars litið til þess að krafa B hf. um niðurfellingu málsins kom fr...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Hjördís Hákonardóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. maí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. júní sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. maí 2010, þar sem leys...
Mál nr. 267/2001
Kærumál Fjárnám Kærufrestur Frávísun frá Hæstarétti
H gerði í máli gegn íslenska ríkinu (Í) kröfu um ógildingu á fjárnámi sem sýslumaður gerði hjá honum að kröfu Í. Málið þótti vanreifað af hálfu H og röksemdir fyrir kröfum hans með þeim hætti að ekki væri unnt að taka efnislega afstöðu til þeirra og var því vísað frá héraðsdómi. Kæra H barst ekki héraðsdómi fyrr en að ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. júní 2001, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. júlí sl. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 15. júní 2001, þar sem vísað va...
Mál nr. 765/2017
Kærumál Skilnaður Fjárslit milli hjóna Frávísunarúrskurður staðfestur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli M, sem krafðist skilnaðar frá K að borði og sæng, var vísað frá dómi á þeim grundvelli að hvorki lægi fyrir samkomulag aðila um fjárskipti né opinber skipti hafin vegna fjárslita þeirra, sbr. 1. mgr. 44. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993.
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, GretaBaldursdóttir og Karl Axelsson.Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. desember 2017, enkærumálsgögn bárust 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður HéraðsdómsReykjavíkur 21. nóvember 2017, þar sem máli sóknaraðila á hendur...
Mál nr. 614/2015
Kærumál Innsetningargerð Vitni
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu H ehf. um að leiða vitni fyrir héraðsdóm við aðalmeðferð í máli L hf. gegn H ehf. Í niðurstöðu Hæstaréttar var rakið að L hf. hafi lagt fram í málinu ýmis skjöl sem hann telji styðja kröfur sínar um að tilgreindir munir verði teknir úr vörslum H ehf. og fengn...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Eiríkur Tómasson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. september 2015, sem barst réttinum 15. sama mánaðar, en kærumálsgögn bárust 23. þess mánaðar. Kærður er úrskurður...
Mál nr. 479/2007
Kærumál Dómkvaðning matsmanns
Varnaraðilar kröfðust þess að dómkvaddur yrði matsmaður til að meta „söluverð, endurgreiðsluverð íbúðarréttar” íbúðar nr. 601 að Fannaborg 8, Kópavogi. S taldi matsbeiðnina brjóta í bága við kröfur laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, um form og efni og ætti því að synja beiðninni. Ekki var talið að röng tilvísun var...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. september 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. ágúst 2007, ...
Mál nr. 206/2007
Milliliðalaus málsmeðferð Ómerking Heimvísun Sératkvæði
X var ákærður fyrir húsbrot, brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlagabrot með því að hafa að næturlagi ruðst inn á heimili konu og tveggja stúlkna, káfað á annarri stúlkunni utanklæða og reynt að kyssa hana og sýnt hinni stúlkunni ruddalegt og ósiðlegt athæfi. Aðalmeðferð fór fram í málinu 16. janúar 2006 og gáfu ák...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 28. mars 2007 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun en jafnframt af hálfu ákæruvalds sem krefst staðfestingar á sakfellingu ákærða en r...
Mál nr. 145/2005
Manndráp af gáleysi Ökuréttarsvipting
Þ var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa bakkað bifreið út af bifreiðastæði án nægjanlegrar aðgæslu og tillitssemi út á gangstétt, með þeim afleiðingum að gangandi vegfarandi féll í götuna og lést af áverkum er hún hlaut á höfði. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingar frestað....
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Garðar Gíslason og Ingibjörg Benediktsdóttir. Ríkissaksóknari skaut máli þessu til Hæstaréttar 23. mars 2005 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvalds, sem krefst staðfestingar héraðsdóms á sakfellingu og ökurétt...
Mál nr. 522/2017
Ráðningarsamningur Laun Endurgreiðsla
L ehf. krafði E um endurgreiðslu launa sem hún hafði fengið greidd í uppsagnarfresti eftir að hún lét af störfum hjá félaginu. Hafði ríkt ótryggt ástand á starfsstöð L ehf. um nokkra hríð og hafði I, framkvæmdastjóra L ehf., verið vikið frá störfum. Var K, faðir E, ráðinn sem framkvæmdastjóri L ehf. í hans stað. Í kjöl...
Dómur Hæstaréttar.Mál þetta dæma Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómari, Garðar Gíslasonsettur hæstaréttardómari og Valtýr Sigurðsson fyrrverandi ríkissaksóknari.Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 22. ágúst 2017. Hann krefst þessað stefndu verði gert að greiða sér 1.067.677 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt1. mgr....
Mál nr. 348/2005
Verksamningur Riftun Vanefnd Skaðabætur Miskabætur
K taldi KS hafa brotið gegn samningsskyldum sínum með þeim hætti að réttlætt hafi fyrirvaralausa riftun hans á tveimur verksamningum um þrif og fleira, og kæru á hendur E til lögreglu. KS og E kröfðust bóta vegna riftunarinnar. K var ekki talinn hafa fært sönnur á að E hafi tekið peningaseðla upp af gólfi verslunar K v...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson prófessor. Áfrýjandinn Kristjánssynir ehf. skaut málinu upphaflega til Hæstaréttar með stefnu 5. ágúst 2005 til þingfestingar fyrir 21. september 2005. Málið varð ekki þingfest þá og skaut þessi...
Mál nr. 271/2014
Skuldamál Lausafjárkaup
K ehf. var gert að greiða spænska félaginu S skuld samkvæmt nánar tilgreindum reikningum, vegna skófatnaðar sem fyrrgreinda félagið hafði pantað frá hinu síðargreinda. K ehf. var ekki talið hafa tekist sönnun um galla á skófatnaði umfram það sem S hafði gengist við, né heldur að félagið ætti rétt til skaðabóta úr hendi...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma Eiríkur Tómasson hæstaréttardómari og Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson settir hæstaréttardómarar. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 22. apríl 2014. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Dómsorð: Hinn áfrýjaði dómur skal vera órask...
Mál nr. 35/2009
Skaðabætur Líkamstjón Sjúkrakostnaður Örorka
H krafði S hf. og Ó um bætur vegna umferðarslyss sem hún varð fyrir 20. desember 2003. Deildu aðilar í málinu um uppgjör bótanna. Talið var að S hf. og Ó hefðu nú þegar bætt H að fullu þann varanlega miska sem henni hafði verið metinn vegna slyssins. Þá var ekki fallist á það með H að uppreikna ætti lágmarkslaun samkvæ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Gagnáfrýjendur áfrýjuðu fyrir sitt leyti 31. mars 2009. Þau krefjast aðallega sýknu af kröfu aðaláfrýjanda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti en til...
Mál nr. 602/2008
Kærumál Hæfi dómara
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu varnaraðila um að dómari málsins viki sæti var hafnað. Fallist var á með varnaraðilum að greinargerð sóknaraðila 31. október 2008 hefði falið í sér skriflegan málflutning og að ekki væri heimild til slíks samkvæmt núgildandi lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Á sa...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason og Ingibjörg Benediktsdóttir. Varnaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 5. nóvember 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum næsta dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. nóvember 2008, þar sem meðal annar...
Mál nr. 27/2004
Almannatryggingar Lífeyrisréttur
R, sem metin var til 60% varanlegrar örorku vegna slyss, fór þess á leit við T að fá greiddan barnalífeyri með börnum sínum, sem öll voru fædd eftir að slysið varð. Samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 67/1971, sem í gildi voru á slystíma, skyldi greiða lífeyri vegna barna yngri en 18 ára sem voru á framfæri bótaþeg...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason og Ingibjörg Benediktsdóttir. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 20. janúar 2004. Krefst hún þess aðallega að stefnda verði gert að greiða sér 4.126.232 krónur, en til vara 2.197.137 krónur, með dráttarvöxtum samkvæmt III. ...
Mál nr. 359/2016
Kærumál Framsal sakamanns
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem ákvörðun innanríkisráherra um framsal X til Póllands var staðfest.
DómurHæstaréttar.Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari ogIngibjörg Benediktsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. maí2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður erúrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. maí 201...
Mál nr. 695/2009
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. desember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykja...
Mál nr. 118/2009
Eignarréttur Samaðild Skipulag Umferðarréttur Eignarnám Sératkvæði
Með nýju deiliskipulagi var gert ráð fyrir kvöð um umferð ökutækja um lóðina við hús nr. 87 á Laugaveg í Reykjavík, inn á lóð hússins nr. 85. Í málinu kröfðust eigendur hússins nr. 85, U ehf., O ehf. og S ehf. þess að viðurkennt yrði fyrir dómi að eiganda hússins nr. 87, H, yrði gert að viðlögðum dagsektum að fjarlægja...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 12. mars 2009. Hann krefst aðallega frávísunar málsins frá héraðsdómi, en til vara sýknu. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti...
Mál nr. 527/2008
Kynferðisbrot Börn Miskabætur
X var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni, sbr. 1. og 2. mgr. 201. gr. og 1. og 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. X játaði sök. Við ákvörðun refsingar hans var litið til þess að brotin voru mjög alvarleg og beindust að ungri stúlku á heimili hennar þar sem hún átti sér griðastað. Þá vo...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason og Markús Sigurbjörnsson. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 3. september 2008 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun, en jafnframt af hálfu ákæruvaldsins, sem krefst þess að refsing ákærða verði þyngd og honum gert...
Mál nr. 336/2009
Ráðningarsamningur Riftun Skaðabætur
G og P gerðu samning í maí 2006 við félagið N um kaup þess á 99% hluta í félögunum Í og V. Í samningnum kom fram að seljendur myndu starfa sem launþegar hjá félögunum næstu tvö árin og gerður yrði sérstakur ráðningarsamningur við hvorn seljanda um sig. Skriflegir ráðningarsamningar voru ekki gerðir en óumdeilt er að G ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 18. júní 2009 og krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér aðallega 7.388.584 krónur en til vara 3.904.304 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. ...
Mál nr. 510/2004
Ávana- og fíkniefni Hjálparskylda Ósæmileg meðferð á líki Vopnalagabrot Upptaka
G, J og T voru sakfelldir fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni, brot gegn lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki, með því að hafa í ágóðaskyni, staðið að innflutningi á 223,67 grömmum af metamfetamíni hingað til lands. Hafði V flutt efnið til landsins í 61 pakkningu innvortis í líkama sínum, en veikst da...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Hrafn Bragason. Ríkissaksóknari skaut máli þessu til Hæstaréttar 7. desember 2004 í samræmi við yfirlýsingar ákærðu um áfrýjun og jafnframt af hálfu ákæruvaldsins, sem krefst stað...
Mál nr. 698/2010
Kærumál Málskostnaður
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem mál L hf. á hendur félaginu 1060 ehf. var fellt niður og L hf. gert að greiða félaginu 130.000 krónur í málskostnað. J var lögmaður félagsins 1060 ehf. í héraði og framseldi félagið honum kröfu sína á hendur L hf. um greiðslu málskostnaðar og jafnframt heimildir framseljanda til ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. desember 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar og 13. janúar 2011. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. ...
Mál nr. 77/2005
Kærumál Börn Aðfarargerð
K kærði úrskurð héraðsdóms, þar sem M var heimilað að fá son sinn og K tekinn úr umráðum K og afhentan sér með beinni aðfarargerð, en M fór með forsjá drengsins. Eftir uppkvaðningu hins kærða úrskurðar var K úrskurðuð forsjá drengsins til bráðabirgða uns dómur félli í forsjármáli aðila. Hafði M því ekki forsjá drengsin...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson, og Jón Steinar Gunnlaugsson. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. febrúar 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 15. febrúar 2005, þar sem varna...
Mál nr. 101/1999
Kærumál Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnæ...
Dómur Hæstaréttar. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson. Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. mars 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. mars 1999, þar sem varnaraðila var gert...